Print this page

Xypex Concentrade leiðbeiningar

Xypex Concentrate notast á steypu og aðra fleti sem innihalda sement. Málningu eða önnur yfirborðsefni verður að fjarlægja.  Eftir Xypex-meðhöndlun verður viðloðun við málningu og önnur yfirborðsefni sérlega góð

              

1. HREINSUN
Fjarlægið allt laust af fletinum með t.d. skrúbb og vatni. Ef fita eða önnur óhreinindi eru á fletinum þá er saltsýrumeðferð 18% (1 hluti saltsýra á móti 6 hlutum vatns) nauðsynleg. Ef steypan er mjög lokuð eða sleip, þá er gott að ýfa flötinn, t.d. með saltsýru, þannig að steypuæðarnar opni sig
             
2. STEYPAN BLEYTT
U.þ.b. klukkutíma áður en meðferð hefst er steypan bleytt rækilega t.d. með því að úða á hana með slöngu eða sprautu. Öll göt og æðar í steypunni þurfa að blotna rækilega, þó þarf að fjarlægja polla áður en Xypex Concentrate er borið á
             
3. BLÖNDUN
Ef notaður er múrkústur þá er blandað saman 5 hlutum Xypex Concentrate á móti 2 hluta vatns. Hrærið blönduna vel eða þangað til hún verður eins og krem, notið gjarnan bor með hræru, og blandið ekki meira en þið getið notað á 15 mínútum því blandan þornar harðnar mjög hratt. Notið gúmmíhanska til að verja hendurnar og forðist að anda að ykkur ryki sem getur myndast við blöndunina. Hindrið að Xypex komist í samband við augu eða húð. Xypex er ekki eitrað og er viðurkennt um allann heim til notkunar í drykkjarvatnstönkum
             
4. SMURNING Á STEYPU
Xypex Concentrate er smurt á steypuna með múrkústi. Stingið kústinum í botn fötunar og hrærið þannig að sem mest fari á kústinn og blandan harðni ekki
             
5. HÖRNUN
Raki verður að vera til staðar svo að kristalmyndunin nái almennilega inn í holur og æðar. Flötur sem hefur verið meðhöndlaður með Cypex Concentrate verður að haldast rakur með vatni í að minnsta kosti 3 daga eftir meðhöndlun. Í staðin fyrir vatnsmeðferð er hægt að nota Xypex Gamma Cure, en því er úðað á um leið og flöturinn harðnar. Xypex Gamma Cure sér steypunni fyrir nauðsynlegum raka í 3 daga eftir meðhöndlun og hverfur svo úr múrnum
             
6. SPRUNGUFYLLING      
Þar sem vatn rennur í gegnum sprungur eða samskeyti getur vetið nauðsynlegt að búa til raufar og fylla þær með sprungufylli.

a)    Höggvið 2,5-5cm djúpa rauf í samskeyti eða þar sem sprungur hafa myndast.

b)    Strjúkið Xypex Concentrate með múrkústi eins og stendur í lið 3 og 4 og munið að bleyta vel.
Fyllið nú upp í sprunguna með “þurrblöndu”, 6 hlutar Xypex Concentrate á móti 1 hluta vatns. Þurrblönduna verður að nota um leið og hún er tilbúin því hún harðnar mjög hratt