Gamma Cure er úðað á Xypex-meðhöndlaðan flöt. Með því að úða Gamma Cure yfir Xypex Concentrate eða Modified þarf ekki að vatna flötinn í þrá daga á eftir. Gamma Cure heldur rakanum inni í steypunni í þrjá daga. Eftir þrjá daga hverfur Gamma Cure án þess að mynda filmu eftir sig. Sama árangri er hægt að ná með því að vökva flötinn reglulega í þrjá daga þannig að hann haldist alltaf rakur.
UMBÚÐIR
Eins gallons, 3,79 ltr. plastbrúsar.
GEYMSLA
Geymsluþol er eitt ár miðað við þurran stað og 5°C lágmarkshita.
ÞEKJA
Gamma Cure blandast með vatni, sjá leiðarvísi. Þá dugar eitt gallon ( 3,79 ltr. ) á ca. 75 frm. flöt.
ATHUGIÐ MJÖG VEL!!
Gamma Cure er sýrublandað efni og verður að meðhöndlast sem slíkt. Gæti valdið þurrkun húðar og varast skal að fá það í augun.
Leiðarvísir fyrir Xypex Gamma Cure